|
Skrifað af Elka Guðmundsdóttir
|
|
föstudagur, 25 janúar 2008 |
|
Við höfum opnað nýja heimasíðu fyrir hrossaræktarbúið á Hamrahóli.
Enn á töluvert efni eftir að rata hér inná síðuna.
Velkomin í heimsókn!
 |
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 25 október 2008 )
|
|
|
Skrifað af Elka Guðmundsdóttir
|
|
föstudagur, 25 janúar 2008 |
|
Við höfum opnað nýja heimasíðu fyrir hrossaræktarbúið á Hamrahóli.
Enn á töluvert efni eftir að rata hér inná síðuna.
Velkomin í heimsókn!

Heimasíðan er sett uppí JOOMLA kerfinu og forrituð af Stefáni Skúlasyni sem hefur sett upp síður á borð við www.saltvik.is www.hest.is www.hestaspil.net www.ljufur.net ásamt fleiri.
Ef þið viljið setja ykkur í samband við Stebba þá er netfangið hjá honum
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
Síðast uppfært ( föstudagur, 25 janúar 2008 )
|
|
|
Skrifað af Elka Guðmundsdóttir
|
|
miðvikudagur, 22 ágúst 2007 |
|

Blævör frá Hamrahóli, Adamsdóttirin sem var seld til Finnlands í vetur hefur kastað fallegu jörpu merfolandi undan Tígli frá Gýgjarhóli. Blævör er þæg og ganggóð reiðhryssa og á eflaust eftir að vera nýja eigandanum, sem heitir Nina Helin, gleðigjafi um ókomna framtíð. Nýfædda hryssan hefur hlotið nafnið Mandla. |
|
Síðast uppfært ( sunnudagur, 04 nóvember 2007 )
|
|
|
Skrifað af Elka Guðmundsdóttir
|
|
mánudagur, 29 október 2007 |
|

Kinnskær er tveggja vetra ungfoli undan Álfastein frá Selfossi og Golu frá Arnarhóli.
Gola er með 7,94 í aðaleinkunn, undan Gandi frá Skjálg og gæðingamóðurinni Vöku frá Arnarhóli.
Kinnskær frá Selfossi er leirljós, skjóttur og ætti því að gefa skemmtilega litadýrð. |
|
|
Skrifað af Elka Guðmundsdóttir
|
|
mánudagur, 29 október 2007 |
|

Hróðvör gerði sér lítið fyrir og sigraði unghrossakeppni Andvara 2007 undir stjórn eiganda síns Guðjóns Tómassonar. Hróðvör er undan Hróðri frá Refsstöðum og Sabrínu frá Hamrahóli. |
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 22 nóvember 2007 )
|
|
|
Skrifað af Elka Guðmundsdóttir
|
|
mánudagur, 29 október 2007 |
|

Ásvör missti móðir sína í sumar þegar Sabrína fórst sviplega. Hérna eru nokkrar myndir af Ásvöru teknar í Slakka í sumar en þar dvaldi hún í góðu yfirlæti eftir móður missinn hjá þeim Báru og Helga. Með henni á myndunum eru vinir hennar og leikfélagar.


|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 19 nóvember 2007 )
|
|
|
Skrifað af Guðjón Tómasson
|
|
|
|


Þann 7. júlí 2006 misstum við skyndilega okkar uppáhalds ræktunarmeri Sabrínu frá Hamrahóli. Sabrína hefur verið stoð og stytta í okkar ræktun frá upphafi, einstaklega skemmtileg klárhryssa með 1. verðlaun í kynbótadómi.
Undan Sabrínu er meðal annars, 1. verðlauna stóðhesturinn Blævar frá Hamrahóli sem nýtur mikilla vinsælda sem undaneldishestur í Danmörku.
Sabrína var einungis 16 vetra gömul og var í hólfi hjá Vídalín frá Hamrahóli.
Til lukku eigum við til fjórar unghryssur undan Sabrínu sem miklar vonir eru bundnar við að geti haldið uppi merki móður sinnar um ókomna framtíð.
Þess má geta að í Þýskalandi er efnilegur stóðhestur undan Sabrínu og Keili frá Miðsitju og falleg hryssa undan Væng frá Auðsholtshjáleigu.
Síðasta afkvæmi Sabrínu er Dalvarsdóttir sem varð móðurlaus en hún hefur braggast vel eftir að hafa verið í fóstri að Slakka við Laugarás. |
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 25 október 2008 )
|
|
|
Skrifað af Guðjón Tómasson
|
|
þriðjudagur, 06 nóvember 2007 |
|

Okkar aðal ræktunarhryssa Ósk frá Hamrahóli lét fyli undan Kjarna frá Þjóðólfshaga síðastliðinn vetur sem var töluvert áfall. Nú er hún fylfull við glæsihestinum Eldjárn frá Tjaldhólum og verður spennandi að sjá afkvæmið þeirra næsta sumar. Elsta afkvæmi Óskar er Vídalín frá Hamrahóli sem er nú í tamningu. Ósk hefur einungis gefið okkur hesta sem allir eru seldir. Akkssonurinn Hvinur er tveggja vetra og Dynssonurinn Stormur er veturgamall en báðir seldust þeir norður yfir heiðar. |
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 nóvember 2007 )
|
|
|
Skrifað af Guðjón Tómasson
|
|
mánudagur, 29 október 2007 |
|

Stóðhesturinn Vídalín frá Hamrahóli er undan Tígli frá Gýgjarhóli og Ósk frá Hamrahóli. Vídalín var seldur sem folald til Nicole Pfau. Hér er um einstaklega fallegan fola að ræða, sérstaklega vel skapaður. Vídalín er orðinn reiðfær í dag og lofar mjög góðu, mjúkur, hreyfingafallegur og geðgóður alhliða foli.
Vídalín var notaður á hryssur í Hamrahóli sumarið 2006, þá tveggja vetra gamall. Undan honum komu mjög falleg folöld sem sum hver eru til sölu.

|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 29 september 2009 )
|
|
|
Skrifað af Elka Guðmundsdóttir
|
|
mánudagur, 29 október 2007 |
|

Ýmir frá Hamrahóli er stóðhestur undan Sabrínu frá Hamrahóli og Keili frá Miðsitju. Friðþjófur Vignisson átti Ými frá því hann var folald og seldi hann til Þýskalands á síðasta ári. Núna er til þriggja vetra árgangur undan Ými í Hamrahóli sem er að týnast í tamningu, tryppin virðast vera mjög þæg og geðgóð, léttbyggð og hreyfingafalleg.
Á neðri myndinni er Ýmir í tamningu hjá eiganda sínum Friðþjófi Vignissyni.

|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 29 október 2007 )
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 25 - 34 af 34 |