| Erfitt vor,bjart framundan. |
|
|
|
| Skrifađ af Guđjón Tómasson | |
| fimmtudagur, 03 júní 2010 | |
|
Nú þegar að sumarið hefur tekið völdin eru tilfynningar okkar hestamanna nokkuð blendnar. Eftir góðann vetur minnti náttúran rækilega á sig með öflugu öskugosi í Eyjafjallajökli sem gerði mikinn usla víða á suðurlandi,sérstaklega undir Eyjafjöllum og í V-Skaftafellssýslu
Til að toppa vorið fór hestaflensan að ágerast og menn að gera sér grein fyrir alvarleika hennar,aðeins mættu örfá hross til sýninga og keppni og fljótlega kom í ljós að vetrarvinnan og væntingar vorsins voru að engu orðnar.Seinnipart apríl mættum við í Víðidalinn til að kanna ástand Eirvarar því okkur langaði að láta Hrefnu spreyta sig með hana í unghrossakeppni Andvara. Þær stóðu sig báðar með prýði en Hrefnu fannst sú jarpa ekki alveg eins og hún vildi og var tekin sú ákvörðun að hætta við frekari þjálfun og keppni um sinn. Þetta reyndist rétt ákvörðun því Eyrvör fékk nefrennsli og hósta sem endaði svo með þó nokkrum hita seinnpartinn í maí en er nú með hjálp Helga dýralæknis vonandi búin að ná sér að fullu. Í lok apríl heimsóttum við Nicki og sáum Snævöru í reið,hún er búin að læra heilmikið á ekki lengri tíma og lofar góðu,aðeins byrjuð að stíga í töltið og er jákvætt og skemmtilegt tryppi. Fyrsu folöld vorsins eru fædd og fyrst kastaði Ólína þessari myndarlegu bleiku hryssu en faðirinn að flestum folöldum ársins er gæðingurinn og geðprýðis hesturinn Gauti frá Gautavík (B:7:88-H:8.41 Ae:8.14) Númer tvö kom þessi fallega bleiálótta hryssa undan Litlu-Sokku og Gauta,hún fer um á brokki með miklum fótaburði.Nú er bara beðið eftir að folöldin skili sér í heiminn og vonandi fer þessari flensu að ljúka þannig að líf hestamanna og annara komist í fastar skorður.
|
|
| Síđast uppfćrt ( föstudagur, 04 júní 2010 ) |
| Nćsti > |
|---|
| Heim |
| Fréttir |
| Um Okkur |
| Rćktun |
| Til Sölu |
| Linkar |
| Hafa samband |
| Leit á Síđu |