Skip to content

Hamrahóll Breeding farm

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hér: Heim
Mars fréttir PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
mánudagur, 15 mars 2010

Lífið gengur sinn vanagang í blíðunni,ég að reyna að liðka mig með göngu og sundi,gengur þokkalega.

Hrefna og Nicki eru að þjálfa fyrir okkur og standa sig með prýði :)

 

 

Eirvör er fædd 2005 og er hjá Hrefnu,hún er undan Sabrínu frá Hamrahóli (8.02) og Akki frá Brautrholti.

Við tókum nokkrar myndir af henni 5.mars og eru bara nokkuð ánægð með útkomuna.

Svo vonum við bara að framhaldið verði í samræmi við þetta en sú stutta lofar góðu :)

Ásvör er fædd 2006 og er búin að vera hjá Nicki,það hefur gengið mjög vel,hryssan með allann gang og jákvæð en vantar aðeins upp á líkamlegann styrk sem er ekkert skrítið þar sem hún missti mömmu sína aðeins 4 vikna en Ásvör er undan Sabrínu og heimsmeistaranum Dalvari frá Auðsholtshjáleygu.Við ákváðum því að gefa henni pásu og sendum jafnöldru hennar til Nicki í staðin,hún heitir Snævör og er undan Þokkadísi frá Hamrahóli og Hauki-Frey frá Höfnum.Hún er mjög myndarleg og fer fallega,viljug og fljót að læra að sögn tamningarkonunar :)

Þessi mynd af Snævöru var tekin hjá Hrefnu í Álfhólum sl.haust þar sem eigandinn fékk að prufa ásetuna og lét vel af ;)

Rúsínan í pylsuendanum er svo þessi myndarlegi gemsi (f: 2009) sem lá svo mikið á að verða fullorðinn að hún dreif sig á fund Amors áður en fé var tekið á hús í haust og afraksturinn er þessi myndarlegi hrútur í heiminn borinn 13.03 sl.Já það er ekki að spyrja að þessum unglingum :)

Síđast uppfćrt ( mánudagur, 15 mars 2010 )
 
< Fyrri   Nćsti >
 

Skrá sig






Týnt lykilorđ?
Ekki međ ađgang? Búđu til einn

Who's Online