Skip to content

Hamrahóll Breeding farm

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hér: Heim
Hitt og ţetta. PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
mánudagur, 04 janúar 2010

Í byrjun desember urðum við þess heiðurs aðnjótandi að vera valin ræktunarmenn Andvara fyrir ræktun okkar á stóðhestinum Vídalín frá Hamrahóli.Það er gaman að fá klapp á bakið fyrir það sem maður er að gera,en þetta er í annað sinn sem við hljótum þessa nafnbót. Á myndinni er Vala að taka við verðlaunum úr hendi Hannesar formans.Því miður gleymdist myndavél og verður þessi símamynd að duga.

Hér heldur annar ræktandinn í Vídalín nýkominn frá kynbótadómi á Hellu þar sem hann landaði meðal annars þremur níum í hæfileikadómi aðeins 4.vetra gamall og er ekki gott að sjá hvort er stoltara.Við óskum eigendunum Nicki og Katrinu innilega til hamingju með þennan flotta fola.

Eyrvör undan Sabrínu frá Hamrahóli og Akki frá Brautarholt,hún er fædd 2005.

Myndirnar eru af Eyrvöru og Hrefnu teknar 30.12.2009 í 15 stiga frosti.

Nú eru Eyrvör og Ásvör komnar í þjálfun,þær byrja bara nokkuð vel og er vonandi að þær þróist hér eftir sem hingað til.Eyrvör er á fimmta vetur og er Hrefna Maria með hana.

Ásvör er fædd 2006 og er undan Sabrínu frá Hamrahóli og Dalvari frá Auðsholtshjáleigu,hún er í þjálfun hjá Nicki Pfau.

Spengingar og skrúfur úr fyrri aðgerðinni.

Af sjúkramálum mínum er það að frétta að spengingar sem settar voru í mig sl.vetur losnuðu sem þýddi að grindin náði ekki að gróa saman.Ég þurfti því að fara í uppskurð 23.11 sl.þar sem báðar spengingarnar voru tekknar,síðan var tekið bein úr mjaðmarkambi og fellt á milli og loks sett ein spenging.Ég vona að betur hafi tekist í þetta sinn en það er ljóst að ég fer ekki á hestbak í vetur.Úr því að svona var komið ákváðum við að leigja hesthúsið í vetur og gekk það fljótt og vel.

Síđast uppfćrt ( mánudagur, 04 janúar 2010 )
 
< Fyrri   Nćsti >
 

Skrá sig






Týnt lykilorđ?
Ekki međ ađgang? Búđu til einn

Who's Online

Ţađ eru 18 gestir tengdir