Skip to content

Hamrahóll Breeding farm

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hér: Heim
Frumtamningar. PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
föstudagur, 02 október 2009

Hrefna María er búin að vera með tvær þriggja vetra hryssur í frumtamningu fyrir okkur og fórum við að skoða þær í gær.Þær eru báðar geðgóðar og fljótar að læra sem lofar bara góðu um framhaldið.Einnig er hún með efnilegann fjögra vetra fola frá Steindóri bróður.

Þetta er Snævör frá Hamrahóli,hún er undan Þokkadísi frá Hamrahóli og Hauki-Frey frá Höfnum.Snævör er yfirveguð og ákveðin og verður rúm og flott tölthryssa.Á myndinni er stoltur eigandinn að taka út tamninguna og á erfitt með að leyna ánægju sinni.

Og tamningarkonan ekki síður ánægð.

Ásvör frá Hamrahóli er síðasta afkvæmi Sabrínu frá Hamrahóli sem fórst þegar Ásvör var 4 vikna gömul,faðirinn er heimsmeistarinn Dalvar frá Auðsholtshjáleigu.Hún er jákvæð með allann gang og verður gaman að sjá hvernig hún þróast í vetur.

Sporlétt og jákvæð.

Með skeiðið á hreinu.

Gustur frá Hamrahóli er 4.vetra foli undan Golu frá Hamrahóli og Ljósvíkingi frá Hamrahóli,hann er stór og myndarlegur,hreingengur með fínt geðslag og góðann vilja.

Mjög efnilegt reiðhests efni að mati Hrefnu.Hann er  SELDUR

Síđast uppfćrt ( föstudagur, 06 nóvember 2009 )
 
< Fyrri   Nćsti >
 

Skrá sig






Týnt lykilorđ?
Ekki međ ađgang? Búđu til einn

Who's Online

Ţađ eru 7 gestir tengdir