| Hafragil og Laufskálarétt. |
|
|
|
| Skrifađ af Guđjón Tómasson | |
| ţriđjudagur, 29 september 2009 | |
|
Um síðustu helgi fór ég norður að Hafragili í Laxárdal með bræðrunum Óla hestamanni og Sigurjóni bólstrara og verðandi hestamanni,en þar er Óli með frábæra aðstöðu fyrir menn og hesta.Margt var sér til gamans gert,farið í Laufskálarétt,sagðar sögur og sungið en þeir bræður eru báðir miklir söngmenn.Einnig var gert við girðingar farið á hestbak,dregið undan og klipptir hófar.Á suðurleiðinni var komið við í sumarbústað Sigurjóns sem er í landi Stóra-Áss í Borgarfirði og gengið frá fyrir veturinn.Ég vil þakka þeim bræðrum góða samveru og skemtilegheit og læt nokkrar myndir frá ferðinni fylgja.Fleirri myndir seinna. Tómas bróðir naut sín vel innan um hestana. ''Króksbóndinn'' léttur að vanda. Slidda á móti. Gaman í réttum. Kát á réttarveggnum. Litfagur og faxprúður. Haust stemming. Sliddan var þétt á köflum. Þessi frábæri harmonikkuleikari hélt uppi fjörinu. Lélegt símasamband kom ekki í veg fyrir að amma fengi afmælissönginn. Óli og Gulltoppur heilsast. Gulltoppur og Sigurjón að heilsast. Óli og Blævars sonurinn Blær frá Hamrahóli. Blær og Óli góðir saman.
Ísar frá Hamrahóli er fallegur veturgamall foli undan Golu og Kinnskæ. Óli og Ísar. Bræður að störfum. Bústaður Sigurjóns í landi Stóra-Áss. Ánægðir í lok ferðar. |
|
| Síđast uppfćrt ( föstudagur, 02 október 2009 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|
| Heim |
| Fréttir |
| Um Okkur |
| Rćktun |
| Til Sölu |
| Linkar |
| Hafa samband |
| Leit á Síđu |