| Hestur nr.5. |
|
|
|
| Skrifađ af Guđjón Tómasson | |
| fimmtudagur, 06 ágúst 2009 | |
|
Þann 5.ágúst kastaði Ósk frísku og fjörugu folaldi.Það fylgir því alltaf dálítill spenningur að vita hvors kyns afkvæmið er og gaman að smá tilbreytingu í því.En Ósk er vanaföst og vill hafa þetta einfalt og eignaðist sinn fimmta hest.Við erum bara hæðstánægð með það og vonum að hann verði ekki eftirbátur foreldra sinna,en faðir hans er Krákur frá Blesastöðum sem stimplaði sig glæsilega inn sem kynbótahestur í vor þegar að þrjú fyrstu afkvæmi hans í kynbótadómi,allt 4.vetra tryppi, fóru beint í fyrstu verðlaun.Tók nokkrar myndir af þeim stutta þriggja tíma gömlum.
Í öruggu skjóli.
Það verður að teygja sig vel til að fylgja mömmu.
Passa hökuna :o)
Sopinn góður.
Falleg mæðgin.
|
|
| Síđast uppfćrt ( sunnudagur, 23 ágúst 2009 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|
| Heim |
| Fréttir |
| Um Okkur |
| Rćktun |
| Til Sölu |
| Linkar |
| Hafa samband |
| Leit á Síđu |