| Folaldafréttir |
|
|
|
| Skrifađ af Guđjón Tómasson | |
| ţriđjudagur, 14 júlí 2009 | |
|
Nú eru fædd nokkur afkvæmi hins fallega (8.28 bygg.) ,velættaða og hreyfingamikla fola Stæls frá Neðra-Seli,en hann er undan Stála frá Kjarri (ae.8.76) og Spætu frá Hólum (8.27 bygg.) Afkvæmin virðast erfa fríðleika ,fínlegan framhluta með mikilli reisingu ásamt hinni miklu hreyfigetu sem Stæll hefur.
Undan gæðinginn Vídalín frá Hamrahóli (kostir 8.66 ae. 8.40) fóru þrjár hryssur ,komin tvö folöld (ein hryssa seld með fyli),Við fengum gullfallega hesta alhliða genga með mjúkar og rúmar hreyfingar.Þessi folöld eru öll til sölu og tilvalið að skoða þau núna þar sem að hryssurnar eru nálægt bæ. Nánari uppl.í síma:Vala 6902846 og Guðjón 6921058.
Brúnsokkóttur hestur unda Litlu-Sokku og Stæl fæddur 27.5 2009.
Brúnskóttur hestur undan Ólínu og Stæl fæddur 4.6.2009.
Brún hryssa undan Þotu og Stæl fædd 27.5 2009.
Rauðblesóttur hestur undan Þokkadísi og Vídalín fæddur 10.06.2009.
Jarpur hestur undan Blesu og Vídalín fæddur 7.6.2009. Er að fara og taka meira af myndum,en sjón er sögu ríkari,hafið samband ef þið viljið skoða.
|
|
| Síđast uppfćrt ( laugardagur, 22 ágúst 2009 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|
| Heim |
| Fréttir |
| Um Okkur |
| Rćktun |
| Til Sölu |
| Linkar |
| Hafa samband |
| Leit á Síđu |