Skip to content

Hamrahóll Breeding farm

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hér: Heim
Stikklur PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Guðjón Tómasson   
þriðjudagur, 02 desember 2008

Nú í skammdeginu er gott að skoða myndir frá liðnu sumri og gera sér grein fyrir því að aftur kemur vor að liðnum vetri. Hér eru systkynin Náttvar og Eyrvör að fagna tímabundnu frelsi eftir skólagöngu liðins vetrar.

 

Eyrvör er þriggja vetra undan Sabrínu og Akki frá Brautarholti.Hrefna var með hana mánuð í haust og gekk mjög vel,tryppið geðgott ,viljugt og með öllum gangi.

Um miðjan mars fór Hrossaræktarfélag Andvara í fræðsluferð um suðurland og var víða komið við,meðal annars hjá hjónunum á Blesastöðum .Þar var vel tekið á móti okkur eins og allsstaðar í velheppnaðri ferð.Set fljótlega myndir úr ferðinni inn á síðuna,en hér stilla Hólmfríður og Magnús sér upp með snillingnum brottflutta, Krumma frá Blesastöðum.

En lífið er sem betur fer ekki bara hestar.Í vor útskrifaðist hún Sigurbirna (Sibba) okkar sem sjúkraliði og gerði sér lítið fyrir og dúxaði með 9.53 í aðaleikunn og erum við foreldrarnir að sjálfsögðu bæði stolt og ánægð með þann árangur.Hér er Sibba með ömmu sinni og afa frá Hamrahóli.

Í haust var svo farið í hina árlegu fjölskylduferð og var haldið til í Félagsgarði í Kjós frá seinni hluta föstudags til sunnudags.Vel var mætt og ýmislegt sér til gamans gert,sungið,leikið og spilað og tókst ferðin vel í alla staði. Meðal annars komu góðir gestir,Rúna og Maggi frá Eyjum með sonum sínum,Óla og Halla og frúm.Auk söngs,spjalls og skemtilegheita komu þau með fangið fullt af ýmsu góðgæti úr eigin framleiðslu,en þau eiga og reka fjölskyldufyrirtækið Mjólku sem þekkt er orðið fyrir framleiðslu úrvalsvara úr mjólk. Á myndinni er Steindór að afhenda Sibbu Hólsengripinn sem er æðsta viðurkenning á sviði spilamensku sem hægt er að hljóta innan Hamrahóls fjölkyldunnar.Myndir úr ferðinni verða settar á síðuna fljótlega.

Í tilefni aðventunar ætla ég að ljúka þessu stikkli með myndum úr reykkofa Tomma og Birnu í Hamrahól,þar sem allt er að verða klárt fyrir jólin.

 

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 desember 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
 

Skrá sig






Týnt lykilorð?
Ekki með aðgang? Búðu til einn

Who's Online

Það eru 3 gestir tengdir