Skip to content

Hamrahóll Breeding farm

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hér: Heim
Erfitt vor,bjart framundan.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
fimmtudagur, 03 júní 2010

Nú þegar að sumarið hefur tekið völdin eru tilfynningar okkar hestamanna nokkuð blendnar.

Eftir góðann vetur minnti náttúran rækilega á sig með öflugu öskugosi í Eyjafjallajökli sem gerði mikinn usla víða á suðurlandi,sérstaklega undir Eyjafjöllum og í V-Skaftafellssýslu

Síđast uppfćrt ( föstudagur, 04 júní 2010 )
Lesa meira...
 
Mars fréttir
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
mánudagur, 15 mars 2010

Lífið gengur sinn vanagang í blíðunni,ég að reyna að liðka mig með göngu og sundi,gengur þokkalega.

Hrefna og Nicki eru að þjálfa fyrir okkur og standa sig með prýði :)

 

 

Síđast uppfćrt ( mánudagur, 15 mars 2010 )
Lesa meira...
 
Hitt og ţetta.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
mánudagur, 04 janúar 2010

Í byrjun desember urðum við þess heiðurs aðnjótandi að vera valin ræktunarmenn Andvara fyrir ræktun okkar á stóðhestinum Vídalín frá Hamrahóli.Það er gaman að fá klapp á bakið fyrir það sem maður er að gera,en þetta er í annað sinn sem við hljótum þessa nafnbót. Á myndinni er Vala að taka við verðlaunum úr hendi Hannesar formans.Því miður gleymdist myndavél og verður þessi símamynd að duga.

Síđast uppfćrt ( mánudagur, 04 janúar 2010 )
Lesa meira...
 
Jólakveđjur
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
fimmtudagur, 24 desember 2009

GLEÐILEG JÓL OG GOTT NÝTT ÁR KÆRU VINIR OG HESTAMENN NÆR OG FJÆR TIL SJÁVAR OG SVEITA OG HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST UM HÁTÍÐIRNAR,ÞÖKKUM ÁNÆGJULEGA SAMVERU OG GOTT SAMSTARF Á LIÐNU ÁRI.

GUÐJÓN,VALA OG SIBBA.

Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 24 desember 2009 )
 
Frumtamningar.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
föstudagur, 02 október 2009

Hrefna María er búin að vera með tvær þriggja vetra hryssur í frumtamningu fyrir okkur og fórum við að skoða þær í gær.Þær eru báðar geðgóðar og fljótar að læra sem lofar bara góðu um framhaldið.Einnig er hún með efnilegann fjögra vetra fola frá Steindóri bróður.

Síđast uppfćrt ( föstudagur, 06 nóvember 2009 )
Lesa meira...
 
Hafragil og Laufskálarétt.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
ţriđjudagur, 29 september 2009

Um síðustu helgi fór ég norður að Hafragili í Laxárdal með bræðrunum Óla hestamanni og Sigurjóni bólstrara og verðandi hestamanni,en þar er Óli með frábæra aðstöðu fyrir menn og hesta.Margt var sér til gamans gert,farið í Laufskálarétt,sagðar sögur og sungið en þeir bræður eru báðir miklir söngmenn.Einnig var gert við girðingar farið á hestbak,dregið undan og klipptir hófar.Á suðurleiðinni var komið við í sumarbústað Sigurjóns sem er í landi Stóra-Áss í Borgarfirði og gengið frá fyrir veturinn.Ég vil þakka þeim bræðrum góða samveru og skemtilegheit og læt nokkrar myndir frá ferðinni fylgja.Fleirri myndir seinna.

Síđast uppfćrt ( föstudagur, 02 október 2009 )
Lesa meira...
 
Fallegar sumarmyndir.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
sunnudagur, 23 ágúst 2009

Ég hef verið töluvert í sveitinni í sumar og verið mjög heppinn með veður.Maður er allt of latur að taka myndir,en stundum er hreinlega ekki hægt annað en að reyna að fanga dýrðina sem blasir við í kvöldsólinni

Lesa meira...
 
Hrafnvar 10 daga.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
sunnudagur, 23 ágúst 2009

Hrafnvar 10 daga dafnar vel og leikur sér mikið.

Síđast uppfćrt ( sunnudagur, 23 ágúst 2009 )
Lesa meira...
 
Hestur nr.5.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
fimmtudagur, 06 ágúst 2009

Þann 5.ágúst kastaði Ósk frísku og fjörugu folaldi.Það fylgir því alltaf dálítill spenningur að vita hvors kyns afkvæmið er og gaman að smá tilbreytingu í því.En Ósk er vanaföst og vill hafa þetta einfalt og eignaðist sinn fimmta hest.Við erum bara hæðstánægð með það og vonum að hann verði ekki eftirbátur foreldra sinna,en faðir hans er Krákur frá Blesastöðum sem stimplaði sig glæsilega inn sem kynbótahestur í vor þegar að þrjú fyrstu afkvæmi hans í kynbótadómi,allt 4.vetra tryppi, fóru beint í fyrstu verðlaun.Tók nokkrar myndir af þeim stutta þriggja tíma gömlum.

Síđast uppfćrt ( sunnudagur, 23 ágúst 2009 )
Lesa meira...
 
Folaldafréttir
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
ţriđjudagur, 14 júlí 2009

Nú eru fædd nokkur afkvæmi hins fallega (8.28 bygg.) ,velættaða og hreyfingamikla fola Stæls frá Neðra-Seli,en hann er undan Stála frá Kjarri (ae.8.76) og Spætu frá Hólum (8.27 bygg.) Afkvæmin virðast erfa fríðleika ,fínlegan framhluta með mikilli reisingu ásamt hinni miklu hreyfigetu sem Stæll hefur.

Undan gæðinginn Vídalín frá Hamrahóli (kostir 8.66 ae. 8.40) fóru þrjár hryssur ,komin tvö folöld (ein hryssa seld með fyli),Við fengum gullfallega hesta alhliða genga með mjúkar og rúmar hreyfingar.Þessi folöld eru öll til sölu og tilvalið að skoða þau núna þar sem að hryssurnar eru nálægt bæ. Nánari uppl.í síma:Vala 6902846 og Guðjón 6921058.

Síđast uppfćrt ( laugardagur, 22 ágúst 2009 )
Lesa meira...
 
Ađ komast í gírinn.
Skrifađ af Guđjón Tómasson   
laugardagur, 11 júlí 2009

Þokkadísar og Vídalínssonur.

Ágætu hestamenn og vinir.

Elns og mörg ykkar vita þá lenti ég í slysi 2. febrúar og hef dvalið á sjúkrahúsi og síðan á Grensás í endurhæfinu.Ég er á góðum batavegi og verð vonandi orðinn jafngóður nú á haustmánuðum.Ég vil þakka allar þær fjölmörgu kveðjur sem ég hef fengið frá ykkur öllum,þær voru mjög hvetjandi þegar skammdegið var sem mest.

Síđast uppfćrt ( laugardagur, 11 júlí 2009 )
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Nćsta > Endir >>

Úrslit 1 - 12 af 34
 

Skrá sig






Týnt lykilorđ?
Ekki međ ađgang? Búđu til einn

Who's Online

Ţađ eru 1 gestur tengdir